Kvennahringur - haust´26
Jæja mín kæra! Þriðji kvennahringurinn!
Viltu vera með í skemmtilegum sjálfseflandi kvennahóp sem gerir allskonar saman?! Við erum konur sem styðjum aðrar konur og losum úr læðingi okkar yndislega kvennakraft!
Svona virkar þetta:
Ég bý til lokaðann rafrænan hóp á FB þar sem ég mun styðja við og rækta samfélag kvenna með það að markmiði að rækta eigin sálargarð, prófa eitthvað nýtt, kynnast öðrum konum og hafa svolítið gaman saman. Í hverjum mánuði verður nokkrir viðburðir sem þú getur mætt á - auðvitað engin skyldumæting samt!
Ég græja og geri og þú bara skráir þig ef þig langar og það hentar þér.
Viðburðir sem við í kvennahringinum höfum farið í: gusur (nóg af þeim!), sjósund, heilun, heimsókn til listakvenna og á söguslóðir þekktra kvenna, fyrirlestrar um fyrrilíf og sorgina og ástina og orku, kakó serimónía, samsöngur, dans, heita pottaspjall, út að borða saman, skógarbað, morgunkaffi og spjall, draumaborðsgerð, diskósund, hellaævintýri, möntrusöngur, rafhittingar og allskonar.
Þá er 1 rafrænn hittingur í mánuði sem eru opnir hópnum þar sem mismunandi málefni eru tekin fyrir.
Dagskráin fyrir haustönn hefst í lok ágúst/byrjun september.
Ég tek eina greiðslu per önn fyrir að halda utan um hópinn, en svo greiðir hver og ein inn á þá viðburði sem hana langar að sækja.
Ef þú greiðir þá ertu komin inn í hópinn. Einfalt :)
Ég hlakka til að kynnast þér!
