top of page
Heilög vinkonustund

Heilög vinkonustund

kr65,000Price

Ég býð ykkur heim í galdrastofuna mína þar sem ég tek á móti ykkur og fer með smá galdramál,  lesa lífstöluna ykkar og legg tarot fyrir ykkur. Svo leiði ég ykkur í gegnum draumaborðsgerð (vision board) þar sem þið getið klippt og límt og málað og föndrað, allt eftir því hvað innsæið kallar eftir. Á kantinum höfum við nasl og huggulegheit með því.

 

Mín reynsla er sú að undirmeðvitundin og innsæið talar á mjög afhjúpandi hátt við þig í gegnum þessa vinnu og sýnir þér hvar fókusinn þarf að vera eða hverjar leyndar þrár og draumar eru!

Svo spennandi!

 

Það er hægt að velja um 3 ásetninga/stemningu fyrir hittinginn.

 

María Magdalena - opnum hjartað, ræktum sjálfsást og mýkt og systralagið.

 

Kali / Ásta Sig. - Losum okkur við allt það sem ekki þjónar okkur, sjálfsstyrking, eldmóður, að segja sinn sannleika.

 

Frida Kahlo / Björk - Vekjum listakonuna, horfumst í augu við hverjar við erum og hvað við viljum, heiðrum hugrekkið og hugsum út fyrir kassann. 

 

Þið sendið á mig hvaða ásetning/stemningu þið veljið.

 

- ATH Praktík -

Hentar fyrir 6-8 vinkonur, hámark 8 gestir í hverja heimsókn (greitt er fyrir stundina, ekki per einstakling).

Hver stund er lokuð fyrir þig og þinn hóp.

Stofan er á 3 hæð með engri lyftu.

Stundin er 2,5-3 klst.

Dagsetning ákvörðuð í sameiningu :)

bottom of page