top of page
Search

Heilög vinkonustund

Ég býð ykkur heim í galdrastofuna mína þar sem ég tek á móti ykkur og fer með smá galdramál,  lesa lífstöluna ykkar og legg tarot fyrir ykkur. Svo leiði ég ykkur í gegnum draumaborðsgerð (vision board) þar sem þið getið klippt og límt og málað og föndrað, allt eftir því hvað innsæið kallar eftir. Á kantinum höfum við nasl og huggulegheit með því.


Mín reynsla er sú að undirmeðvitundin og innsæið talar á mjög afhjúpandi hátt við þig í gegnum þessa vinnu og sýnir þér hvar fókusinn þarf að vera eða hverjar leyndar þrár og draumar eru!Svo spennandi! 
Það er hægt að velja um 3 ásetninga/stemningu fyrir hittinginn. 

María Magdalena - opnum hjartað, ræktum sjálfsást og mýkt og systralagið. 

Kali / Ásta Sig. - Losum okkur við allt það sem ekki þjónar okkur, sjálfsstyrking, eldmóður, að segja sinn sannleika. 

Frida Kahlo / Björk - Vekjum listakonuna, horfumst í augu við hverjar við erum og hvað við viljum, heiðrum hugrekkið og hugsum út fyrir kassann.  Þið sendið á mig hvaða ásetning/stemningu þið veljið.

Auðvitað þarf ekkert að velja ásetning en það er svona skemmtilegra uppá stemningu, tónlist og veitingar!


Ég hlakka til að kuklast með þér og þínum bestu konum!


Þú getur keypt viðburð hér.


Þegar greiðsla hefur borist sendi ég á þig línu og við ákveðum rest í sameiningu :)


- ATH Praktík -
Þessir hittingar henta fyrir 6-8 vinkonur, hámark 8 gestir í hverja heimsókn (greitt er fyrir allan hópinn).
Hver stund er lokuð fyrir þig og þinn hóp.
Stofan er á 3 hæð með engri lyftu.
Stundin er 2,5-3 klst.
Dagsetning ákvörðuð í sameiningu :)

 
 
 

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
bottom of page