top of page
Search

Að uppgötva nýtt áhugamál

Hvað áttu í þínu lífi sem þér þykir skemmtilegt en þú kannski gerir ekki af því þú ert „ekki góð í því“?


Ég er mikið búin að pæla í þessu - að vera góð í einhverju... Á mælikvarða hvers?


Erum við stundum að bíða eftir að okkar stærsti og harðasti dómari hrósi okkur? En hvað ef viðkomandi myndi gera það - myndum við trúa því og væri það nóg?


Það er þessi innri nagandi efi sem drepur alla sköpunargleði og fovitni, leikinn, þetta „af því bara“ - að gera eitthvað af því það er skemmtilegt.


þarf ekki að skapa þér tekjur eða afla þér vinsælda eða vera fyrir einhvern heldur er bara fyrir þig því þér finnst það gaman.


Hvað áttu sem er þannig í þínu lífi og þú kannski gefur þér ekki leyfi til að „eyða“ tíma í?


Þjónar engum tilgangi og engum húsbónda heldur bara gefur sálinni gleði...


Kom ekki upp á daginn - að ég hef gaman að ljósmyndun! (nú auðvitað líka eyðibýlum, augljóslega)



Ég hef aldrei pælt neitt sérstaklega í ljósmyndun og alltaf sagt að ég hafi ekkert gaman af henni en svo allt í einu, eiginlega eins og uppúr þurru, þá small eitthvað og ég fór að smella af!


En auðvitað er þetta ein leið til að segja sögu og ég er alltaf að semja sögur svo þetta segir sig sjálft :)


Býr eitthvað svona óvænt í þér?



 
 
 

Comments

Rated 0 out of 5 stars.
No ratings yet

Add a rating
bottom of page